Skilmálar Flugrútunnar
Skilmálar þessir gilda um allar bókanir og alla þjónustu sem Flugrútan (Flybus) veitir, en Flugrútan er rekin af Icelandia. Með því að kaupa miða eða stíga um borð í bifreið Flugrútunnar samþykkir þú þá skilmála sem fram koma á þessari síðu, þar á meðal reglur um afbókanir, endurgreiðslur, skyldur farþega, farangur, aðgengi og breytingar á þjónustu.
Skilmálar þessir eru birtir á íslensku og ensku. Komi upp misræmi milli útgáfanna gildir enska útgáfan.
1. Almenn ákvæði
Flugrútan býður upp á áætlunarferðir og sveigjanlegan flugvallarakstur milli Keflavíkurflugvallar (KEF), Reykjavíkur og tilgreindra staða þar sem farþegar eru sóttir eða þeim skilað. Flugrútan býður jafnframt upp á akstur til og frá hótelum og gististöðum innan Reykjavíkur (áður Flybus+).
Flugrútan starfar í samræmi við íslensk lög og almenna skilmála Icelandia.
2. Bókanir
Hægt er að kaupa miða á netinu á flybus.is, á Keflavíkurflugvelli við komu eða í tilgreindum miðasölum og sjálfsafgreiðsluvélum.
Með miðum Flugrútunnar þarf ekki að taka frá sæti; sæti er alltaf tryggt í næstu brottför.
Bóka þarf Flugrútuna með hótelakstri (Flybus+) að minnsta kosti 2 klukkustundum fyrir brottför.
Viðskiptavinir bera ábyrgð á því að gefa upp réttar upplýsingar um hvar eigi að sækja þá þegar þeir bóka Flugrútuna með hótelakstri.
3. Gildistími og notkun miða
Flugrútan (Keflavíkurflugvöllur → Reykjavík)
Miðar frá Keflavíkurflugvelli eru að fullu sveigjanlegir og gilda í næstu brottför, óháð seinkunum á flugi.
Farþegar geta farið með hvaða ferð Flugrútunnar sem er sem leggur af stað skömmu eftir að flug þeirra lendir.
Gildistími miða: Allur dagurinn (með svigrúmi fyrir farþega sem lenda um miðnætti).
Flugrútan (Reykjavík → Keflavíkurflugvöllur)
Farþegar sem kaupa miða frá Reykjavík þurfa að velja tiltekinn brottfarartíma.
Farþegar bera ábyrgð á því að mæta að minnsta kosti 30 mínútum fyrir áætlaðan brottfarartíma.
Miðar fram og til baka
Miðar fram og til baka gilda fyrir eina ferð hvora leið.
Ekki er endurgreitt fyrir ónotaðan hluta miða fram og til baka.
4. Afbókanir og endurgreiðslur
Afbókanir farþega
Almennar afbókunarreglur Icelandia gilda:
Afbókun meira en 24 klukkustundum fyrir brottför: full endurgreiðsla.
Afbókun innan 24 klukkustunda fyrir brottför: engin endurgreiðsla.
Ekki er endurgreitt ef farþegi mætir ekki. Miðar fram og til baka, og miðar fram og til baka með hótelakstri, eru samsettir miðar á afsláttarverði og fást því ekki endurgreiddir eftir að hluti þeirra hefur verið notaður.
Breytingar
Hægt er að breyta því hvenær farþegi er sóttur, brottfarartíma eða bókun á Flugrútunni með hótelakstri allt að 2 klukkustundum fyrir brottför, ef laust er. Óska þarf eftir slíkum breytingum símleiðis svo tryggt sé að beiðnin berist tímanlega. Hringdu í síma +354 599 0000 til að óska eftir breytingu á bókun.
Ekki er hægt að framselja miða til annarra farþega.
5. Farangur
Innifalinn farangur
Hver farþegi má hafa með sér:
Tvær hefðbundnar töskur í farangursrými (allt að 23 kg hvor)
Eina litla handfarangurstösku
Viðbótarfarangur og farangur í yfirstærð
Farangur í yfirstærð eða sérstakur farangur (t.d. skíði, brimbretti, reiðhjól, hljóðfæri):
Sjá verðskrá okkar varðandi viðbótarfarangur.
Ábyrgð á farangri
Flugrútan ber ekki ábyrgð á:
Minniháttar sliti (rispum, dældum, brotnum hjólum eða handföngum)
Skemmtum á útstæðum hlutum
Brothættum munum sem ekki er pakkað á viðeigandi hátt
Farangri sem seinkar, týnist eða er stolið
Farþegar bera ábyrgð á því að farangur þeirra sé settur í og tekinn úr bifreiðinni.
6. Aðgengi og sérstök aðstoð
Farþegar sem þurfa aðstoð skulu láta Flugrútuna vita fyrir fram.
Bóka þarf pláss fyrir hjólastóla sem ekki er hægt að leggja saman að minnsta kosti 2 dögum fyrir fram svo tryggt sé að þjónustan sé í boði þegar farþeginn kemur.
Leiðsöguhundar og vottuð þjónustudýr eru leyfð gegn framvísun gildra gagna.
Önnur dýr eru ekki leyfð í Flugrútunni né í hótelakstri Flugrútunnar.
7. Flugrútan með hótelakstri
Hótelakstur er eingöngu í boði frá tilgreindum hótelum og gististöðum á Reykjavíkursvæðinu.
Farþegar eru að jafnaði sóttir 30 mínútum fyrir auglýstan brottfarartíma Flugrútunnar.
Ef hótel er á göngugötusvæði eða á svæði þar sem ekki er hægt að aka að því getur farþegi þurft að mæta á viðurkennda stoppistöð.
Farþegar bera ábyrgð á því að vera á réttum stað á réttum tíma. Missi farþegi af hótelakstrinum er litið svo á að hann hafi ekki mætt.
8. Skyldur farþega
Farþegar skuldbinda sig til að:
Mæta tímanlega fyrir brottför.
Ganga úr skugga um að þeir fari um borð í rétta rútu.
Fylgja ávallt fyrirmælum starfsfólks.
Nota bílbelti þar sem þau eru til staðar.
Gæta eigna sinna.
Sýna starfsfólki og öðrum farþegum virðingu.
Flugrútan áskilur sér rétt til að neita farþegum um þjónustu ef þeir stefna öryggi í hættu eða brjóta reglur um borð.
9. Breytingar á þjónustu og seinkanir
Flugrútan getur breytt:
Leiðum
Tímaáætlunum
Viðkomustöðum
Gerð bifreiða
…vegna veðurs, færðar, vélarbilana eða rekstrarlegra ástæðna.
Flugrútan leggur sig fram um að koma farþegum á áfangastað á réttum tíma en getur ekki ábyrgst komutíma og bere enga ábyrgð á:
Flugferðum sem farþegar missa af
Gistikostnaði
Framhaldsferðum og tengiflugi
Öðrum aukakostnaði sem hlýst af seinkunum
Þetta er í samræmi við almenna ábyrgðarstefnu Icelandia.
10. Öryggi
Nota skal bílbelti þar sem þau eru til staðar.
Bannað er að standa á meðan bifreiðin er á ferð.
Foreldrar og forráðamenn bera ávallt ábyrgð á börnum sínum.
Gæta skal öryggis barna í samræmi við íslensk lög:
Seatbelts must be worn whenever available.
Standing while the vehicle is in motion is prohibited.
Parents/guardians are responsible for children at all times.
Children must be secured in accordance with Icelandic law:
Börn 3 ára og yngri skulu ferðast í viðeigandi barnabílstól. Flugrútan hefur takmarkaðan fjölda barnabílstóla og ekki er hægt að tryggja að þeir séu lausir.
Börn eldri en 3 ára sem eru undir 135 cm á hæð skulu nota barnabílstól þar sem hann er til staðar. Ef enginn barnabílstóll er til staðar mega þau nota bílbelti bifreiðarinnar.
Börn sem eru 135 cm eða hærri nota hefðbundin bílbelti.
Hafðu samband við þjónustuver okkar fyrir ferðina ef þú ferðast með barn sem þarf barnabílstól, svo við getum kannað hvort stóll sé laus í þá ferð.
11. Óskilamunir
Flugrútan meðhöndlar óskilamuni í samræmi við reglur Icelandia.
Munir sem finnast eru fluttir á Umferðarmiðstöðina BSÍ og geymdir þar í að minnsta kosti eina viku, en að þeim tíma liðnum er þeim fargað. Vegabréf og skilríki sem finnast í rútum eru afhent lögreglunni á lögreglustöðinni við Hverfisgötu. Farþegar þurfa að hafa beint samband við Flugrútuna til að tilkynna um muni sem gleymst hafa um borð. Flugrútan ber ekki ábyrgð á týndum eða stolnum munum.
12. Icelandair Saga Club
Flugrútan er samstarfsaðili Icelandair Saga Club. Farþegar sem eru félagar í Icelandair Saga Club geta skráð Saga Club númer sitt við kaup á miða í Flugrútuna og safnað Vildarpunktum hjá Icelandair Saga Club.
- Fyrir hverjar 1.000 kr. sem greiddar eru fyrir miðann fást 25 Vildarpunktar.
- Vildarpunktar eru ekki veittir við kaup. Punktarnir eru veittir og skráðir á reikning félaga eftir að miðinn hefur verið notaður.
- Skráning Saga Club númers er valfrjáls og hefur engin áhrif á verð, gildistíma eða skilmála miðans.
- Til að hægt sé að veita Vildarpunkta afhendir Flugrútan Icelandair Saga Club viðeigandi bókunarupplýsingar þegar Saga Club númer fylgir bókun. Þessi miðlun upplýsinga takmarkast við bókanir þar sem Saga Club númer hefur verið gefið upp.
- Icelandair Saga Club gefur út Vildarpunkta og hefur umsjón með þeim. Um punktana, þar á meðal notkun þeirra, gildistíma og fyrningu, gilda skilmálar Icelandair Saga Club.
- Icelandair Saga Club svarar fyrirspurnum um Saga Club reikninga og punktastöðu.
13. Lög og varnarþing
Um skilmála þessa gilda íslensk lög. Mál sem rísa kunna vegna ágreinings um skilmála þessa skulu rekin fyrir Héraðsdómi Reykjavíkur.