Ferðaupplýsingar
Það á að vera skemmtilegt að ferðast, ekki ruglingslegt og stressandi. Við komum þér hratt og örugglega á áfangastað en hér finnur þú ýmsar ýtarlegar upplýsingar um Flugrútuna.
Finndu næstubiðstöð
Þú getur valið sérstakar biðstöðvar í Reykjavík og borgað aukalega fyrir skutlið.
Stoppistöðvar á leiðinni
Allar ferðir Flugrútunnar á Keflavíkurflugvöll hefjast á BSÍ en einnig er hægt að stíga um borð á þremur stöðum á leiðinni: við Hamraborg í Kópavogi, Aktu Taktu í Garðabæ og Fjörukrána (Hótel Víking) í Hafnarfirði.
Veldu stoppistöðina sem brottfararstað í bókunarferlinu. Athugið að rútan stoppar aðeins á þessum stöðum ef bókun liggur fyrir á viðkomandi stöð. Til að tryggja snurðulausa brottför eru farþegar beðnir að vera sýnilegir og tilbúnir þegar rútan nálgast. Rútan er við Hamraborg um 5 mínútum eftir brottför frá BSÍ, við Aktu Taktu um 10 mínútum og við Fjörukrána um 15 mínútum eftir brottför.
Skutlið
Hægt er að bæta skutli við bókunina og velja úr fjölda staða miðsvæðis í Reykjavík í bókunarflæðinu. Á BSÍ er skipt um bíl og minni skutla keyrir þig á endastöð. Þetta er einföld, þægileg og hagkvæm viðbót við hefðbundnu Flugrútuleiðina.
Alltaf á réttum tíma
Áætlun Flugrútunnar er í samræmi við áætlun flugfélaganna. Þú þarft ekki að hafa neinar áhyggjur af rútunni þótt fluginu sé seinkað.
Finndu þína stöð
Flugrútan býður upp á skutl til og frá tilgreindum biðstöðvum nálægt helstu gististöðum í Reykjavík. Ef þú býrð nálægt Flugrútustöð er frábært að fá skutl alla leið.
Við sækjum og skutlum
Gott er að mæta 10 mínútum fyrir áætlaðan tíma á Flugrútustöðina sem þú valdir.
Sveigjanlegur valkostur
Ókeypis afbókun allt að 24 tímum fyrir brottför.

Fáðu farfrá flugvelli
í bæinn
Veldu hagkvæma, örugga og sjálfbæra leið til að hefja og ljúka ferðalaginu. Þú færð alltaf far með Flugrútunni.
