Persónuverndarstefna Flugrútunnar

Síðast uppfært:: 28. janúar, 2026

Hjá Flugrútunni skipta friðhelgi þín og öryggi persónuupplýsinga þinna okkur máli. Í þessari persónuverndarstefnu er útskýrt hvernig við söfnum, notum, geymum og verndum persónuupplýsingar þegar þú notar vefsíðuna okkar og flugvallarakstur.

Persónuverndaryfirlýsing

Flugrútan er rekin af Icelandia, sem er ábyrgðaraðili þeirra persónuupplýsinga sem þú lætur okkur í té. Icelandia rekur nokkur ferðaþjónustuvörumerki, þar á meðal Flugrútuna, Reykjavik Excursions, Íslenska fjallaleiðsögumenn, DIVE.IS og fleiri.
Til að geta veitt þjónustu okkar með skilvirkum hætti þurfum við að safna og vinna tilteknar grunnpersónuupplýsingar. Vinnslan byggist fyrst og fremst á lögmætum hagsmunum okkar, í samræmi við f-lið 1. mgr. 6. gr. almennu persónuverndarreglugerðarinnar (ESB) 2016/679. Þegar þess er krafist óskum við eftir sérstöku samþykki þínu áður en persónuupplýsingum er safnað eða þær unnar.

Loforð okkar til þín

Við leggjum áherslu á að fara ábyrgt með persónuupplýsingar þínar. Það þýðir að:

  • Við söfnum, notum og geymum persónuupplýsingar þínar á öruggan hátt.
  • Við söfnum aðeins þeim upplýsingum sem nauðsynlegar eru til að veita þjónustu okkar.
  • Við notum persónuupplýsingar þínar aðeins í þeim tilgangi sem tilgreindur er.
  • Við erum opin um það hvernig upplýsingar þínar eru notaðar og hverjum þær eru afhentar.

Hvaða persónuupplýsingum söfnum við?

Þegar þú bókar eða notar þjónustu Flugrútunnar kunnum við að safna eftirfarandi upplýsingum:

  • Nafni
  • Netfangi
  • Símanúmeri
  • Upplýsingum um bókun og ferð
  • Upplýsingum um hvar farþegi er sóttur og hvar honum er skilað
  • Greiðsluupplýsingum (sem greiðsluþjónustuaðilar vinna á öruggan hátt)
  • Upplýsingum tengdum vildarkerfum (t.d. Saga Club-númeri, ef það er gefið upp)
  • Samskiptum við þjónustuver

Við söfnum ekki vísvitandi viðkvæmum persónuupplýsingum.

Hvers vegna þurfum við upplýsingarnar?

Við söfnum og notum persónuupllýsingar til að:

  • Vinna úr og halda utan um bókanir í Flugrútuna
  • Veita flugvallarakstur Flugrútunnar, þar á meðal skutl til og frá gististöðum
  • Koma á framfæri mikilvægum upplýsingum um ferðina (t.d. um hvenær farþegar eru sóttir, þjónustutilkynningum eða breytingum á rekstri)
  • Veita aðstoð í þjónustuveri
  • Afgreiða greiðslur og endurgreiðslur
  • Halda utan um vildarpunktakerfi þar sem það á við
  • Uppfylla skyldur samkvæmt lögum, bókhaldsreglum og öðrum reglum

Við söfnum ekki persónuupplýsingum sem ekki er þörf á til að veita þessa þjónustu.

Hvað gerum við við upplýsingarnar?

Allar persónuupplýsingar eru unnar af starfsfólki Icelandia eða traustum þjónustuaðilum sem starfa fyrir okkar hönd. Upplýsingarnar eru geymdar á öruggan hátt, fyrst og fremst á Íslandi eða innan Evrópska efnahagssvæðisins (EES).
Til að geta veitt þjónustu okkar kunnum við að afhenda takmarkaðar persónuupplýsingar:

  • Samstarfsaðilum sem koma að rekstri Flugrútunnar
  • Greiðsluþjónustuaðilum
  • Þjónustuaðilum upplýsingatækni- og bókunarkerfa
  • Félögum innan samstæðu Icelandia

Greiðslukortaupplýsingar eru unnar á öruggan hátt af greiðsluþjónustuaðilum okkar og Flugrútan geymir þær aldrei.
Við höfum gert viðeigandi tæknilegar og skipulagslegar ráðstafanir til að vernda persónuupplýsingar gegn óheimilum aðgangi, glötun eða misnotkun.

Icelandair Saga Club

Ef þú ert félagi í Icelandair Saga Club getur þú valið að slá inn Saga Club númerið þitt þegar þú bókar miða í Flugrútuna og safnað Vildarpunktum Icelandair fyrir kaupin.

Þegar þú slærð inn Saga Club númer afhendum við Icelandair Saga Club númerið og þann fjölda Vildarpunkta sem leggja á inn á reikninginn, miðað við upplýsingar í bókuninni þinni. Icelandair notar þessar upplýsingar til að leggja Vildarpunkta inn á Saga Club reikninginn þinn.

Við afhendum þessar upplýsingar eingöngu ef þú hefur slegið inn Saga Club númer í bókuninni. Ef reiturinn er skilinn eftir auður eru engar upplýsingar afhentar Icelandair í þessum tilgangi.

Icelandair ber ábyrgð á aðild þinni að Saga Club og á þeim upplýsingum sem félagið tekur við í þessum tilgangi, og vinnur þær í samræmi við eigin persónuverndarstefnu og skilmála Icelandair Saga Club.

Hversu lengi geymum við upplýsingarnar?

Persónuupplýsingar eru aðeins varðveittar eins lengi og nauðsynlegt er til að:

  • Veita þjónustu okkar
  • Uppfylla lagaskyldur og kröfur um bókhald

Upplýsingar sem notaðar eru í beinu markaðsstarfi eru varðveittar þar til þú afþakkar slík samskipti eða óskar eftir að þeim verði eytt.

Markaðssamskipti

Með samþykki þínu kunnum við að nota nafn þitt og netfang til að senda þér upplýsingar um þjónustu Flugrútunnar, tilboð eða tengdar vörur. Þessi samskipti kunna að vera í umsjón þriðju aðila, svo sem þjónustuaðila fyrir tölvupóstsendingar. Þú getur afskráð þig hvenær sem er með hlekknum í tölvupóstum okkar eða með því að hafa beint samband við okkur.

Hversu örugg eru gögnin þín?

Vefsíðan okkar notar örugga dulkóðun (SSL) til að vernda gögn sem fara á milli vafrans þíns og netþjóna okkar. Við gerum viðeigandi öryggisráðstafanir til að tryggja að farið sé með persónuupplýsingar þínar á öruggan og ábyrgan hátt.

Persónuvernd barna

Fjölskyldur kunna að nýta sér þjónustu Flugrútunnar. Persónuupplýsingum um börn er aðeins safnað sem hluta af bókun sem foreldri eða forráðamaður gerir og eingöngu í þeim tilgangi að veita umbeðna þjónustu.

Réttindi þín

Samkvæmt persónuverndarlögum átt þú rétt á að:

  • Óska eftir aðgangi að persónuupplýsingum þínum
  • Óska eftir leiðréttingu á röngum eða ófullnægjandi upplýsingum
  • Óska eftir eyðingu persónuupplýsinga þar sem það á við
  • Takmarka eða andmæla tiltekinni vinnslu
  • Afturkalla samþykki þegar vinnsla byggist á samþykki

Ef þú telur að við vinnum persónuupplýsingar þínar með ólögmætum hætti, eða ef svör okkar eru þér ekki fullnægjandi, átt þú rétt á að leggja fram kvörtun hjá Persónuvernd: https://www.personuvernd.is/

Breytingar á persónuverndarstefnu

Við áskiljum okkur rétt til að uppfæra þessa persónuverndarstefnu hvenær sem er. Breytingar taka gildi um leið og þær eru birtar á þessari síðu.

Hafðu samband

Ef þú ert með spurningar um þessa persónuverndarstefnu eða meðferð persónuupplýsinga þinna getur þú haft samband við okkur á [email protected].

Persónuverndarstefna | Flugrútan