
Algengar spurningar
Flybus er enska og alþjóðlega heitið á Flugrútunni. Flugrútan er þægileg og áreiðanleg áætlunarferð sem tengir saman Keflavíkurflugvöll (KEF) og miðborg Reykjavíkur, auk valinna hótela, gististaða og stoppistöðva. Flybus er í akstri alla daga og miðast ferðir við allar komur og brottfarir um Keflavíkurflugvöll.
Við mælum með því að fólk bóki sæti í Flugrútunni fyrir fram, sérstaklega á háannatíma en það er einnig hægt að kaupa miða á BSÍ og á Keflavíkurflugvelli.
Brottfarir Flugrútunnar eru tímasettar í samræmi við komur og brottfarir allra flugfélaga um Keflavíkurflugvöll, dag og nótt. Þú þarft aldrei að hafa áhyggjur af því að missa af rútunni. Ef fluginu seinkar þá bíður samt alltaf Flugrúta fyrir utan. Brottfarir frá BSÍ eru samkvæmt tímatöflu og fara á u.þ.b. klukkutíma fresti frá 4:00 til 22:30, í samræmi við brottfarir flugfélaga frá Keflavík.
Farið tekur um það bil 45 mínútur en það fer helst eftir veðurskilyrðum og umferð. Fjarlægðin á milli Keflavíkurflugvallar og BSÍ er 50 kílómetrar. Athugið að það er einnig hægt að velja stoppistöðvar Flugrútunnar í Garðabæ og í Hafnarfirði en þá er ferðin eðlilega styttri.
Ef þú ert að bóka farið út á flugvöll þá þarftu að velja brottfarartíma. Ef hann breytist er lítið mál að breyta í næstu brottför. Ef þú ert að bóka farið til Reykjavíkur/Garðabæjar/Hafnarfjarðar frá Keflavíkurflugvelli er enginn tími valinn heldur gildir miðinn í allar brottfarir frá flugvellinum þann daginn.
Finnur þú ekki svar við spurningunni?
Ekki hika við að hafa samband ef þú þarft aðstoð eða ert með spurningar.
Subscribe and stay informed
Sign up for our newsletter and be the first to know when we have special news and offers.