
Flugrútan Keflavík → Reykjavík
Þú getur alltaf treyst á Flugrútuna
Flugrútan er áreiðanleg, auðveld og þægileg leið á milli Keflavíkurflugvallar og Reykjavíkur. Áætlunarferðir eru tengdar komum og brottförum á Keflavíkurflugvelli og því er alltaf hægt að treysta á far með Flugrútunni.

Af hverju Flugrútan
Flugrútan hefur keyrt farþega til og frá Keflavíkurflugvelli frá árinu 1979 og býður í dag upp á nýlegan flota, þægilegar tímasetningar og örugga þjónustu.
Alltaf á réttum tíma
Brottfarir eru í samræmi við komur allra flugfélaga.
Hagkvæmur valkostur
Eitt fast verð og enginn aukakostnaður
Fljótlegt og þægilegt
tekur 45 mín
Sveigjanleiki
Stök ferð eða báðar leiðir. Bókaðu á netinu eða í sjálfsala.
Þægindi
Nettenging um borð, USB-hleðsla, loftræsting og rúmgott farangursrými.
Kolefnisjafnað far
Við kolefnisjöfnum aksturinn í samræmi við sjálfbærnistefnu félagsins.

Þú færð alltaf far með Flugrútunni
Þú getur stólað á far með Flugrútunni. Áætlunarferðir eru tímasettar í samræmi við komur og brottfarir .
Hvernig virkar Flugrútan
Auðvelt að bóka, alltaf öruggt sæti og brottfarir eru tímasettar í samræmi við komur í Keflavík. Svona virkar Flugrútan.
Auðvelt að bóka
Bókaðu á netinu, hjá starfsmanni eða í sjálfsala
Beint fyrir utan
Flugrútan bíður fyrir utan komusal Keflavíkurflugvallar
Njóttu ferðarinnar
Slakaðu á og hafðu það gott á meðan við skutlum þér á áfangastað
Veldu þína stöð
Ef BSÍ hentar ekki, getur þú valið úr öðrum stoppustöðvum eða bætt skutli við miðann á valda áfangastaði í Reykjavík
Brottfarir
Flugrútan fer reglulega frá BSÍ frá 4:00 til 22:30
Farangur
Innifalin er farangursheimild fyrir tvær töskur, allt að 23 kg hver

Flugrútan frá 1979
Frá árinu 1979 hefur Flugrútan séð um farþegaflutninga milli Keflavíkurflugvallar og Reykjavíkur allt árið um kring. Hjá Flugrútunni starfa reyndir bílstjórar sem bjóða farþegum upp á trausta og góða þjónustu og þægilegar áætlunarferðir tryggja áhyggjulaust ferðalag.
